Fréttastofa RÚV
Vopnahlé í Líbanon tók gildi á miðnætti að staðartíma. Við fyrstu sýn virðist það nokkuð brothætt. Ásakanir hafa þegar komið um vopnahlésbrot og Hezbollah-samtökin eru við öllu búin auk þess sem Ísraelsmenn segjast vera í viðbragðsstöðu fyrir frekari árásir ef á þurfi að halda. Þegar vopnahléið tók gildi ráðlagði líbanski herinn þeim sem flúið höfðu heimili sín í suðurhluta Líbanons að koma ekki heim strax þar sem Ísraelsmenn væru enn að gera árásir. Þær ráðleggingar báru ekki tilætlaðan árangur. Miklar bílalestir mynduðust með fólk sem hafði flúið norður á bóginn en sá nú tækifæri til að snúa aftur heim í suðurhlutann. Einn þeirra sagði við AFP-fréttastofuna að tengsl fólks við heimili sín hefðu knúið það til að snúa aftur þrátt fyrir þessa hættu. Hafnaði símtali við Netanjahú Leiðtogar og almenningur fagna vopnahléinu, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna greindi frá í gærkvöld. Trump sagði jafnframt að Joseph Aoun forseti Líbanons og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels kæmu að öllum líkindum til fundar í Hvíta húsinu á næstu 4-5 dögum. AFP-fréttastofan hefur eftir ónafngreindum embættismanni að Aoun hafi hafnað boði um símtal beint við Netanjahú. Vopnahléið er mikilvægur þáttur í að samkomulag náist milli Bandaríkjanna, Ísraels og Írans í stríðinu í Íran. Stjórnvöld þar höfðu þegar sagt að vopnahlé í Líbanon væri frumskilyrði fyrir samkomulagi. Trump sagði í gær að samningar væru mjög nærri og að Íranar hefðu samþykkt að afhenda allar birgðir sínar af auðguðu úrani. Pakistanar, sem hafa verið að miðla málum, vinna að því að koma á öðrum fundi milli deilenda, en fyrsta fundalotan var í Islamabad, höfuðborg Pakistans, um síðustu helgi. Afvopnun Hezbollah enn frumskilyrði Bæði Ísraelsmenn og Hezbollah-samtökin, sem árásir Ísraelsmanna í Líbanon hafa aðallega beinst að, tala þó þannig að lítið þurfi til að átök brjótist út að nýju. Benjamín Netanjahú sagði um leið og hann fagnaði vopnahléinu að herinn myndi viðhalda tíu kílómetra öryggissvæði við landamærin. Ísraelsmenn væru við öllu búnir ef þess þyrfti. Netanjahú tók jafnframt fram að afvopnun Hezbollah væri enn frumskilyrði. Hezbollah-samtökin sögðu að samtökin myndu virða vopnahléið „með varúð“ ef Ísraelsmenn hættu árásum. „Okkar fólk verður með fingurinn á gikknum því það veit af sviksemi óvinarins,“ sögðu samtökin í yfirlýsingu. Stjórnvöld í Líbanon saka Ísraelsmenn um að hafa þegar rofið vopnahléið með árásum . Fréttaskýrendur segja að þetta vopnahlé sé afar brothætt. Ísraelsmenn þurfi litla ögrun frá Hezbollah til að rjúfa það, þar sem deilur þeirra á milli eru langt frá því að vera útkljáðar. Og þessi deila er nátengd stríðinu í Íran þar sem Íranar veita Hezbollah-samtökunum mikinn stuðning. Um 2.000 hafa verið drepin í Líbanon frá því átökin þar hófust 2. mars.
Go to News Site