Collector
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í borginni | Collector
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í borginni
Fréttastofa RÚV

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í borginni

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Reykjavík samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Alls mælist hann með 27,6% fylgi miðað við könnunina og bætir við sig 3,1% frá því í kosningunum 2022. Hann fengi þannig sjö borgarfulltrúa. Samfylkingin mælist með næstmest fylgi, 23,2%. Flokkurinn hlaut 20,3% atkvæða í kosningunum 2022. Samfylkingin hlyti sex fulltrúa samkvæmt þeirri niðurstöðu. Vinstrið á sterka innkomu sem nýr flokkur og mælist með 13,5% fylgi. Það fylgi myndi skila alls þremur borgarfulltrúum. Vinstrið er sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir listann og var áður borgarfulltrúi fyrir hönd Sósíalistaflokksins. Í síðustu kosningum 2022 fengu Vinstri græn alls 7,7% atkvæða og Sósíalistar 4% eða samtals 11,7% atkvæða. Meirihlutinn fallinn Góð innkoma Vinstrisins er þó ekki nægileg fyrir núverandi meirihluta sem er fallinn samkvæmt þessu. Samfylkingin, Vinstrið, Píratar og Flokkur fólksins fengju samtals 10 fulltrúa en 12 fulltrúa þarf fyrir minnsta mögulega meirihluta. Miðflokkurinn bætir við sig Miðflokkurinn mælist með 10,7% fylgi og fengi þannig einnig þrjá fulltrúa. Miðflokkurinn bætir miklu við sig í könnuninni miðað við síðustu kosningar eða rúmlega 8%. Flokkurinn fékk 2,4% atkvæða árið 2022. Viðreisn mælist með 10% fylgi og tvo borgarfulltrúa. Flokkurinn bætir við sig 5% frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn tapar mestu fylgi en hann mælist með 3,9% fylgi og fengi einn borgarfulltrúa. Flokkurinn hlaut 18,7% atkvæða í síðustu kosningum 2022. Neðstu flokkar eru Píratar sem mælast með 3,5%, Sósíalistar með 2,5% og Okkar borg sem mælist með 1,5% stuðning. 8% svarenda könnunarinnar sögðu að þeir myndu skila auðu og 18% svarenda vildu ekki taka afstöðu eða vildu ekki gefa hana upp. Tekið er fram að framboðið Góðan daginn hafi komið fram undir lok könnunartímans og enginn nefndi það framboð eftir að það bættist við. Um könnunina Spurt var: Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? En hvaða flokk eða lista er líklegast að þú myndir kjósa? Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. - 15. apríl 2026. Heildarúrtaksstærð var 2.138 og þátttökuhlutfall var 40,1%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9-3,5%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Go to News Site