Collector
Miðflokksmenn saka ríkisstjórnina um blekkingar um ESB | Collector
Miðflokksmenn saka ríkisstjórnina um blekkingar um ESB
Fréttastofa RÚV

Miðflokksmenn saka ríkisstjórnina um blekkingar um ESB

Stjórnarandstæðingar á Alþingi saka ríkisstjórnina um ráðabrugg og blekkingaleik varðandi fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Í frétt Morgunblaðsins í dag var fjallað um að gögn utanríkisráðuneytisins frá 2010 gefi meðal annars til kynna að aðlögun að ESB hefjist meðan á aðildarviðræðum stendur. Tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi í dag. „Hæstvirtir ráðherrar, forystumenn ríkisstjórnarinnar, hafa annaðhvort viljandi eða óviljandi sagt þinginu og þjóðinni ósatt um aðildarviðræður við Evrópusambandið og áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins. „Þessar viðræður munu ekki snúast um að sjá hvað er í boði. Áframhald viðræðna myndi eingöngu snúast um áframhaldandi aðlögun að Evrópusambandinu.“ Málið hafi verið lagt fram á fölskum forsendum. Sigmundur Davíð bað um að gefið yrði svigrúm til að ræða málið sérstaklega á Alþingi fyrir hlé sem tekið verður vegna sveitarstjórnarkosninganna í maí. „Ekki hægt að plata þjóðina“ Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, sagðist skilja að um Evrópusambandið væru skiptar skoðanir. Fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu tryggi að engar blekkingar eigi sér stað. „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið, einfaldlega vegna þess að fyrirkomulagið gerir ráð fyrir því að það verði tvær þjóðaratkvæðagreiðslur í ferlinu,“ sagði Sigmar. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði seinni atkvæðagreiðsluna ekki hafa gildi sem öryggisventil því gert væri ráð fyrir aðlögun á samningstímanum. „Það er ekki hægt að fara á bak við þjóðina við þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar. „Ef samningurinn er okkur ekki þóknanlegur, þá að sjálfsögðu segjum við bara nei við honum.“

Go to News Site