Fréttastofa RÚV
Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör munu gleðja landsmenn, ekki síst gesti og heimafólk á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar, en þau semja og flytja þjóðhátíðarlagið í ár. Birgitta segir að hún hafi ekki þurft að hugsa sig tvisvar um þegar þjóðarhátíðarnefnd hringdi í hana. „Ég tók strax mjög vel í það en ég fékk líka um leið hugmynd að það væri gaman að fara einhverja aðra leið sem væri kannski ekki of týpísk eða eitthvað sem fólk ætlaðist til að ég gerði. Ég sá alveg fyrir mér að mig langaði til að fara með lagið aðra leið og þá var Árni sem er góður vinur minn, náttúrulega sá eini eiginlega sem kom til greina til þess að gera þetta með mér.“ Birgitta á við Herra Hnetusmjör sem heitir Árni Páll Árnason. Þjóðhátíðarlagið er áratugalöng hefð, allt frá 1933 þegar Árni úr Eyjum og Oddgeir Kristjánsson sömdu lagið Setjumst að sumbli. Birgitta segir að mikil ábyrgð sé fólgin í verkefninu. „Ég er allavegana að fíla þetta í tætlur“ „Maður reynir náttúrulega bara að ýta því frá sér og detta í einhverja sköpun og þetta ferli hjá okkur Árna er búið að vera bara ótrúlega skemmtilegt. Við þekkjumst vel og okkur líður vel saman og það eru einhverjir töfrar sem myndast þegar við hittumst.“ Stutt er í að lagið verði frumflutt og Birgitta vill lítið segja um hver stíllinn verður. „Mig langar svo að segja þér það, en í leiðinni þá vil ég líka leyfa því bara að koma þegar það er tilbúið. Ég er allavegana að fíla þetta í tætlur og held að það sé það eina sem get sagt að svo stöddu.“ Fljótur að slá til þegar Birgitta kallaði Herra Hnetusmjör segist ekki hafa hikað þegar Birgitta hafði samband við hann stuttu fyrir jól. „Ég var fljótur að slá til enda Birgitta algjört legend og við náðum vel saman í Idolinu.“ Að sjálfsögðu fylgi pressa að sjá um Þjóðhátíðarlagið. „Þetta er stórt verkefni en við erum vel meðvituð um það og það er skemmtilegast að vinna undir pressu,“ segir Herra Hnetusmjör, sem hefur annars í nægu að snúast með nýja plötu, Tónlist til að sigra við , og afmælistónleika í Laugardalshöll í næsta mánuði.
Go to News Site