Collector
Hefja kjarnaboranir til að kanna möguleika jarðganga | Collector
Hefja kjarnaboranir til að kanna möguleika jarðganga
Fréttastofa RÚV

Hefja kjarnaboranir til að kanna möguleika jarðganga

Kjarnabor kom til Vestmannaeyja í gær og rannsóknarboranir hefjast um helgina. Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, segir það gert til þess að eyða óvissu um fýsileika jarðganga til Eyja. Kjarnaborunin fer þannig fram að sýni eru tekin úr jarðlögum og samlíming bergs, þéttni og lekt skoðuð. „Þetta er síðan metið til að búa til kostnaðarmat fyrir jarðgöngin,“ segir Haraldur. Kostnaðurinn við borun í Heimaey og á Landeyjasandi er í kringum 200 milljónir og að sögn Haralds er fjármagnið sótt til sveitarfélaga í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi auk fyrirtækja um allt land. Nú sé lokaspretturinn á fjármögnuninni. „Síðan erum við að fara í hljóð- og endurvarpsmælingar og þá erum við að skoða hversu sterkt bergið er á hafsbotni,“ segir hann. Myndi breyta öllu að fá göng Haraldur segir að það myndi breyta öllu ef göng yrðu boruð á milli lands og eyja. „Samgöngurnar hafa verið í algjörum lamasessi og Landeyjahöfn hefur verið algjört olnbogabarn í 16 ár síðan hún kom.“ Til dæmis yrðu 18 kílómetra löng göng aðeins korter í akstri fyrir bíl, sem myndi stytta ferðina til Vestmannaeyja umtalsvert. Þrátt fyrir að gosið hafi í Heimaey fyrir ekki svo löngu segir Haraldur ekki líkur á gosi næstu árþúsundin. „Gosvirknin er að færast austar. Við erum að fara vestast. Það eru engar líkur á eldvirkni akkúrat þar sem við erum hér.“ Hluthafar í Eyjagöngum eru: Vestmannaeyjabær Ísfélag hf. Vinnslustöðin hf. Landsbankinn hf. Rangárþing eystra DVG Fasteignafélag ehf. Íslandsbanki hf. N1 ehf. Sion ehf. Eignarhaldsfélag Suðurlands hf. Bergur-Huginn ehf. Tölvun ehf. Bylgja VE 75 ehf. Haraldur Pálsson

Go to News Site