Collector
Allir framboðslistar á einum stað | Collector
Allir framboðslistar á einum stað
Fréttastofa RÚV

Allir framboðslistar á einum stað

Landskjörstjórn hefur birt alla framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem verða haldnar 16. maí. Framboðsfrestur rann út fyrir viku og yfirkjörstjórnir sveitarfélaga hafa staðfest framboðslista. Listarnir eru alls 178 í 50 sveitarfélögum og á þeim eru 3.156 frambjóðendur. Upplýsingar um framboðslista hafa verið teknar saman hér á vefnum Kosning.is . Sveitarstjórnarkosningar verða ekki haldnar í fjórum sveitarfélögum því aðeins einn listi kom fram í hverju þeirra áður en framboðsfrestur rann út. Sá listi verður því sjálfkjörinn í viðkomandi sveitarfélagi. Þau eru eftirfarandi. Kjósarhreppur: A-listi – Íbúar í Kjós Snæfellsbær: D-listi – Sjálfstæðisflokkurinn Tjörneshreppur: T-listi – Tjörneslistinn Vopnafjarðarhreppur: O-listi – Sterk Stoð Í sveitarfélögum þar sem engir framboðslistar komu fram verður óbundin kosning. Þar eru allir kjósendur í viðkomandi sveitarfélagi í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Óbundin kosning verður haldin í sjö sveitarfélögum. Ásahreppi Dalabyggð Eyja- og Miklaholtshreppi Fljótsdalshreppi Grýtubakkahreppi Kaldrananeshreppi Langanesbyggð. Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí og helstu upplýsingar um kosningarnar má nálgast hér. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst í dag fyrir þá sem geta ekki kosið á kjördag. Helstu upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má sjá hér .

Go to News Site