Fréttastofa RÚV
Ýmsar gleðifréttir hafa borist af Hormússundi í dag. Íranar segjast hafa opnað sundið að fullu, Donald Trump segir að Íranar ætli aldrei að loka því aftur og þjóðarleiðtogar hafa samþykkt að taka þátt í fjölþjóðlegri aðgerð um opnun sundsins strax og skilyrði leyfa. En það er ekki þar með sagt að allt sé í himnalagi og umferð um þetta mikilvæga Hormússund sé komin á sama stað og hún var áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn hófu loftárásir sínar á Íran í lok febrúar. Fleiri hindranir eru þar í veginum. Ný siglingaleið og skipafélög treg Abbas Araghchi utanríkisráðherra Ísraels sagði í tilkynningu á X í dag að nú væri sundið opið fyrir öll flutningskip meðan á vopnahléinu stæði. Vopnahléið í Íran á að renna út 22. apríl. Markaðir glöddust við þetta, enda fer um 20% af allri olíu heimsins um sundið. Olíuverð lækkaði líka mikið eftir þessa yfirlýsingu. En veruleikinn er aðeins flóknari. Stærstu skipafélögin hafa ítrekað sagt að öryggi áhafnanna sé í forgangi. Þau hafa því viljað bíða með ferðir um sundið þangað til þau hafa frekari tryggingu fyrir því að það sé orðið nógu rólegt á sundinu. Alþjóðlegu hafréttarsamtökin eru einnig að meta hversu öruggt sundið er, í ljósi þess að fjöldi hermanna bæði frá Bandaríkjunum og Íran eru enn á sundinu og mikil spenna er enn milli þeirra. Í tilkynningu utanríkisráðherra Írans kom einnig fram að skipin þyrftu að fara sérstaka leið um sundið sem er nær strandlengju Íran. Hún er grynnri en hefðbundin siglingaleið. Því er ekki algjört frelsi til að sigla um sundið. Þá hótaði ónafngreindur íranskur embættismaður í sambandi við fjölmiðla þar að sundinu yrði lokað aftur héldu Bandaríkjamenn siglingabanni sínu á írönsk skip til streitu. Þá er óljóst hvort Íranar haldi þeirri kröfu til streitu að Íranski byltingarvörðurinn hafi eftirlit með skipum sem fara um svæðið, þar á meðal bandarískum herskipum. Ef þeir gera það er ólíklegt að Bandaríkjamenn samþykki slíkt. En Donald Trump var í það minnsta að mestu jákvæður í tíu færslum sem hann setti inn á Truth Social á einni og hálfri klukkustund í dag. Hann fagnaði tilkynningu Írana en sagði að bann Bandaríkjanna við siglingu skipa til eða frá írönskum höfnum stæði áfram þangað til friðarsamningur næðist við Íran. Trump sagði slíka samninga reyndar á næsta leiti því búið væri að semja um flest. Íranar hefðu meðal annars samþykkt að loka Hormússundi aldrei aftur. Þá var einnig tilkynnt nú síðdegis að Bretar og Frakkar myndu leiða fjölþjóðlegt verkefni sem myndi tryggja frelsi til siglinga um Hormússund um leið og aðstæður leyfa. Hermenn yrðu einungis sendir til varnar, bæði til að tryggja siglingar og styðja við eyðingu tundurdufla. Í stuttu máli er staðan á Hormússundi því þannig að yfirlýsingar dagsins gefa góð fyrirheit og fólk er hóflega bjartsýnt. Hins vegar er fullt frelsi til siglinga ekki fyrir hendi og staðan er enn það viðkvæm að brugðið getur til beggja vona í þeim efnum.
Go to News Site