Collector
FH vann Hauka og spilar til úrslita gegn Val | Collector
FH vann Hauka og spilar til úrslita gegn Val
Fréttastofa RÚV

FH vann Hauka og spilar til úrslita gegn Val

FH vann Hauka í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla á Ásvöllum í kvöld, 36-35. Þetta var þriðji sigur FH og vinna þeir einvígið 3-1 og fara áfram í úrslitaviðureignina. Þar mætir FH Val, sem hafði áður lagt KA 3-0. Fyrsta úrslitaviðureignin er á heimavelli Vals því þeir eru deildarmeistarar. Fyrsti leikurinn er á föstudaginn í næstu viku. Fyrirfram má reikna með spennandi einvígi. Liðin tvö urðu efst í deildinni í vetur; Valur varð deildarmeistari með 34 stig og FH var aðeins stigi á eftir. Í leikjum liðanna í deildinni unnu þau einn sigur hvort og bæði unnu á heimavelli hins liðsins. Birkir Benediktsson var markahæstur hjá FH með 5 mörk.RÚV / Mummi Lú

Go to News Site