Collector
„Þarna liggur hættan og þarna verðum við Íslendingar að tala alveg skýrt“ | Collector
„Þarna liggur hættan og þarna verðum við Íslendingar að tala alveg skýrt“
Fréttastofa RÚV

„Þarna liggur hættan og þarna verðum við Íslendingar að tala alveg skýrt“

Sjávarútvegsstjóri ESB, Costas Kadis, fundaði með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í dag. Kadis sagðist vera meðvitaður um að sjávarútvegsmálin væru Íslendingum mikilvæg og að mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til ríkja sem sækja um aðild að sambandinu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir hins vegar að þótt tekið sé tillit til sérkenna einstakra umsóknarríkja sækist Ísland eftir öðrum kostum, meðal annars verulegum undanþágum frá sambandslöggjöf ESB og varanlegri undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB. Hún segir engin fordæmi fyrir því að slíkar undanþágur hafi verið veittar. „Sérkenni þjóða eru ekki um það deilt en varanlegar undanþágur eru allt annað.“ Heiðrún segir að takmarkanir á aðkomu erlendra fjárfesta að sjávarútvegi séu meðal þeirra undanþága sem farið er fram á. Fiskur á Íslandsmiðum eigi að vera veiddur af íslenskum fyrirtækjum og unninn hér á landi en ekki erlendum fyrirtækjum. „Þarna liggur hættan og þarna verðum við Íslendingar að tala alveg skýrt.“ Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að þótt tekið sé tillit til sérkenna einstakra umsóknarríkja í ESB sækist Ísland eftir öðrum kostum. Íslendingar verði að tala skýrt.

Go to News Site