Collector
Sérstök undanþága til kaupa á rússneskri olíu framlengd | Collector
Sérstök undanþága til kaupa á rússneskri olíu framlengd
Fréttastofa RÚV

Sérstök undanþága til kaupa á rússneskri olíu framlengd

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja um mánuð sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu. ­ Scott Bessent er fjármálaráðherra Bandaríkjanna.EPA / SHAWN THEW Heimildin takmarkast þó líkt og áður við kaup á olíu sem nú þegar er um borð í rússneskum skipum á hafi úti. Fjármálaráðuneytið tilkynnti þetta í gær, tveimur dögum eftir að ráðherrann Scott Bessent staðhæfði að undanþágunni yrði ekki framlengt. Bandaríkjamenn ákváðu um miðjan mars að aflétta banninu að sögn til að auka stöðugleika á alþjóðlegum orkumörkuðum, enda var olíuverð þá þegar tekið að hækka vegna stríðsins gegn Íran.

Go to News Site