Fréttastofa RÚV
Bann Bandaríkjanna við siglingu skipa til og frá írönskum höfnum stendur áfram náist ekki friðarsamningur við klerkastjórnina. Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við fréttamenn um borð í forsetaþotunni.AP / Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti áréttaði þetta við fréttafólk um borð í forsetaþotunni í kvöld auk þess sem hann sagðist hugsanlega ekki framlengja vopnahléð á miðvikudag þegar það rennur sitt skeið á enda. Þá gæti farið svo að loftárásir verði hafnar að nýju nema Íranar fallist á friðarsamkomulag við Bandaríkin. Þó útilokaði hann ekki að samningar náist. Íranir opnuðu fyrir siglingar um Hormússund í gær meðan vopnahlé við Bandaríkin varir.
Go to News Site