Fréttastofa RÚV
Lögregla handtók mann vegna líkamsárásar gegn leigubílstjóra í Hafnarfirði í gærkvöld eða nótt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV Maðurinn var vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar gistu fjórir í morgun. Lögreglan sinnti einnig tilkynningu um innbrot í geymslur í Efra-Breiðholti og þjófnaði á veitingastað í Háaleitishverfi. Maður var fluttur á slysadeild eftir að hafa fengið heita olíu yfir aðra höndina í eldhúsi á vinnustað í miðborginni. Auk þessa voru nokkrir ökumenn handteknir í annarlegu ástandi og minnst einn sektaður fyrir hraðakstur.
Go to News Site