Collector
Helsingi í Reykjavík | Collector
Helsingi í Reykjavík
Fréttastofa RÚV

Helsingi í Reykjavík

Fremur sjaldséður gestur suðvestanlands sást við Starhaga í Reykjavík á miðvikudag þar sem hann beit gras af áfergju og sötraði vatn úr pollum. Þarna var á ferðinni helsingi, gæs sem sést vanalegast að vori til í þúsundatali á Suðaustur- og Norðvesturlandi, í Húnavatnssýslum og Skagafirði en er fátíð á suðvesturhorninu. Helsinginn vappaði þarna um suðurströnd Reykjavíkur innan um hóp grágæsa að því er Sólrún Harðardóttir greinir frá á vefnum Náttúra Reykjavíkur . Sólrún fagnaði því sérstaklega að hafa myndavél meðferðis til að geta sannað fund sinn. Hún segir helsingja vera umferðarfarfugla sem haldi sig á Bretlandseyjum að vetrarlagi en haldi flestir til Grænlands á sumrin og komi við hérlendis til að safna orku. Þegar helsinginn heldur til baka á haustin dreifir hann sér meira um sunnanvert hálendið og Skaftafellssýslur, þar sem nokkur hópur þeirra hefur sumardvöl og verpir, helst á söndunum framan við jöklana og innan um jökullónin.

Go to News Site