Fréttastofa RÚV
Leiðtogar stjórnmálaflokka yst á hægri vængnum koma saman í ítölsku borginni Mílanó í dag til að lýsa óánægju sinni með stöðu innflytjendamála í Evrópu. Evrópskir föðurlandsvinir, þriðji stærsti flokkahópurinn á Evrópuþinginu, efndi til samkomu undir yfirskriftinni „Án ótta – í Evrópu meistarar á eigin heimili“. Matteo Salvini, varaforsætisráðherra Ítalíu, er skipuleggjandi viðburðarins. Hann leiðir flokkinn Lega , eða Bandalagið, sem er þjóðernissinnaður flokkur í ríkisstjórn Giorgiu Meloni. Jordan Bardella úr frönsku Þjóðfylkingunni, Andrej Babis, forsætisráðherra Tékklands, og hollenski harðlínumaðurinn Geert Wilders hafa boðað komu sína. Spænski flokkurinn Vox hefur ekki boðað komu sína og ekki heldur Fidesz, flokkur Viktors Orbans, sem átti frumkvæði að stofnun flokkahópsins á Evrópuþinginu. Fidesz laut nýverið í lægra haldi í þingkosningum í Ungverjalandi.
Go to News Site