Fréttastofa RÚV
Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan, hertogaynjan af Sussex, hafa lokið fjögurra daga ferðalagi sínu um Sydney og Melbourne í Ástralíu. Þar næst heldur Harry einn áfram til Canberra. Ferðin hefur verið umdeild líkt og margt sem hjónin hafa tekið sér fyrir hendur eftir að þau sögðu sig frá konunglegum skyldum sínum. Ferðin var ekki opinber heimsókn heldur eins konar kynningarferð og voru hjónin aðalræðumenn á stórum – og dýrum – ráðstefnum auk þess sem þau heimsóttu barnaspítala, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, stríðsminnisvarða og fóru í göngutúr með frumbyggjum. Parið fór síðast til Ástralíu í níu daga opinbera heimsókn skömmu eftir að þau giftu sig árið 2018. 300 þúsund fyrir VIP-miða Hjónin hafa sætt gagnrýni fyrir þátttöku sína á ráðstefnunum og hafa gagnrýnendur þeirra einnig sett spurningarmerki við það hversu mikið parið fái greitt fyrir slíkar framkomur á meðan aðrir hafa spurt hvers vegna þau séu yfirhöfuð í kynningarferðum, í ljósi þess að þau séu ekki lengur starfandi fyrir konungsfjölskylduna. Ferðin er kostuð af einkaaðilum. Harry var aðalræðumaður á ráðstefnu InterEdge um „sálfélagslegt öryggi“ þar sem hann ræddi geðheilbrigði á vinnustað en rúma 2 þúsund ástralska dollara eða um 200 þúsund krónur. Samkvæmt breskum fjölmiðlum þáði prinsinn aftur á móti ekki þóknun fyrir ræðuna. Meghan var fyrsti ræðumaður á þriggja daga ráðstefnu fyrir konur sem kallast „Her Best Life“ eða „Hennar Besta Líf“. VIP-miði sem innihélt mynd með Meghan kostaði rúma 3 þúsund ástralska dollara eða um 300 þúsund íslenskar krónur. Orðið fyrir neteinelti á hverjum degi í áratug Hjónin heimsóttu tækniháskóla í Melbourne í gær og lýstu yfir stuðningi sínum við samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára, sem tók nýlega gildi í Ástralíu. Meghan sagði skaðsemi samfélagsmiðla gríðarlega og sagðist sjálf hafa orðið fyrir neteinelti á hverjum degi í áratug. Það vanti að hennar mati hvata fyrir samfélagsmiðlarisa til þess að stöðva slíkt athæfi á miðlunum. „Ég var ofsóttasta manneskja í heimi af nettröllum,“ sagði hertogaynjan. Harry tók undir með eiginkonu sinni og hrósaði áströlskum yfirvöldum fyrir að vera leiðandi í þessum efnum. Hann sagði engu að síður sorglegt að koma þyrfti á banni sem refsi ungmennum frekar en að samfélagsmiðlarisar taki meiri ábyrgð.
Go to News Site