Fréttastofa RÚV
Íslenskur sjávarútvegur er í brennidepli í nýrri grein danska dagblaðsins Berlinske og er af heimildarmönnum þess lýst sem „nútíma fámennisstjórn“, og sagður vera byggður á „fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“. Blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn , meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem ræddu við Olsen. Í greininni segir að sjávarútvegur hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs Íslands en að hann sé einnig að „éta upp lýðræði landsins að innan“, eins og það er orðað í greininni. Sjávarútvegurinn sé byggður á ótta, stjórn og pólitískum áhrifum. Kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan sjávarútvegsins hafi óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir. Samherjamálið er reifað í greininni, auk umfjöllunar um svokallaða „skæruliðadeild“, og benda heimildarmenn Berlinske á málið sem grundvallarógn við fjölmiðlafrelsi á Íslandi. Haft er eftir Daða Má að hann hafi lengi reynt að „leysa vandann“ en að „öflugir þrýstihópar“ standi í vegi. Daði Már nefnir, auk annarra heimildarmanna Berlinske, tengsl Sjálfstæðisflokksins við sjávarútvegsfyrirtæki.
Go to News Site