Collector
Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá | Collector
Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá
Fréttastofa RÚV

Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá

Þrjár björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi í gær vegna slasaðs manns í gjótu. Talsverðan mannskap þurfti til að hífa manninn upp og koma honum undir læknishendur. Björgunarsveitirnar Ingunn á Laugarvatni, Tintron í Grímsnesi og Björgunarfélag Árborgar voru kallaðar út rétt um klukkan átta í gærkvöld vegna manns sem féll í Davíðsgjá sem er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni. Auk sveitanna var sjúkraflutningalið frá Selfossi og lögregla kölluð út. Hópur fólks hafði verið við sund í gjánni þegar einn lenti í gjótu og slasaðist nokkuð á fæti með talsverðum blæðingum. Ljóst var frá upphafi að nokkur vinna yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll kæmist og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni. Hinn slasaði hress miðað við aðstæður Jakob Guðnason er varaformaður Tintron og tók þátt í útkallinu og segir manninn hafa verið kominn upp úr gjótunni þegar björgunarsveitarfólk bar að garði. „En það eru þarna klettasillur sem við erum að koma honum upp. Þetta er kannski svona 4-5 metra hækkun sem við erum að koma honum upp í stórgrýti og það þurfti bara töluverðan mannskap til að ná því. Svo voru þetta svona 150 metrar í kjarri og stórgrýttu landslagi til að koma honum að sjúkrabílnum.“ Um tuttugu manns tóku þátt í aðgerðunum og segir Jakob útkallið hafa gengið hratt og vel fyrir sig. Hann viti ekki hvernig hinum slasaða heilsist í dag en að hann hafi verið nokkuð brattur miðað við aðstæður. „Hann var talandi þegar hann fór inn í sjúkrabíl frá okkur og nokkuð hress miðað við aðstæður.“

Go to News Site