Fréttastofa RÚV
Maður hóf skothríð í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, síðdegis í dag. Nokkrir voru skotnir til bana og einhverjir til viðbótar eru særðir, segir Vitali Klitschko borgarstjóri. Hann sagði árásarmanninn enn leika lausum hala en skömmu síðar tilkynnti innanríkisráðherra landsins að hann hefði verið felldur þegar lögreglumenn reyndu að handtaka hann. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site