Fréttastofa RÚV
Aðstæður til skíðagöngu voru eins og best verður á kosið þegar Fossavatnsgöngunni lauk á Ísafirði í dag, hiti um frostmark, nær heiðskírt og hægur vindur. Norðmaðurinn Andreas Nygaard sigraði í 50 km göngunni á tveimur klukkustundum, 22 mínútum og 34,8 sekúndum. Andreas var tæpum tveimur mínútum á undan næsta manni í mark, Tékkanum Stanislav Rezac og þriðji varð Ítalinn Riccardo Mich. Hilmar Örn Kárason kom fyrstur Íslendinga í mark í sjötta sæti á 2 klst. og 31 mín. og 4,2 sekúndum. Fyrst kvenna varð Sophia Velicer sem keppir fyrir Taívan. Hún kom í mark á tímanum 02:51:32,6 klst. Önnur kvenna var Annika Landis frá Bandaríkjunum á tímanum 2:55:29,8 og þriðja varð hin norska Lea Stabæk Wenaas á tímanum 2:55:35,2. Linda Rós Hannesdóttir kom fyrst íslenskra kvenna í mark í sjötta sæti á tímanum 3:24:29,3 klst. 568 keppendur af yfir 20 þjóðernum Fossavatnsgangan á Ísafirði er stærsta skíðamót landsins. Þátttakendur í ár voru alls 568 talsins af yfir 20 þjóðernum. Þar af tóku 295 þátt í 50 km göngunni. Gangan fór fyrst fram árið 1935 og er sú elsta sem enn er við lýði á Íslandi. Fyrstu göngur mótsins fóru fram á miðvikudag þegar keppt var í Næturfossavatninu, 35 og 70 km göngum með frjálsri aðferð, sem hófust klukkan 22 um kvöld. Á fimmtudaginn tóku svo við 25 km ganga með frjálsri aðferð, 5 km Fjölskyldufossavatnið og 1 km Krakkafossavatnið. Stærsti keppnisdagurinn er þó laugardagurinn þegar keppt er í 50, 25 og 12,5 km göngum með hefðbundinni aðferð. Öll úrslit úr göngunni má sjá hér .
Go to News Site