Fréttastofa RÚV
Tveir leikir fóru fram í undanúrslitum úrvalsdeildar kvenna í handbolta í dag. Valskonur kjöldrógu Fram og unnu níu marka sigur, 27-18. Valur var yfir í hálfleik 14-8. Leikurinn var gjörólíkur þeim fyrsta í einvíginu sem Valskonur unnu naumlega 26-24. Valur leiðir einvígið 2-0. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Síðar í dag mættust svo Haukar og ÍBV á Ásvöllum. Haukar unnu fyrsta leikinn 26-29 í Vestmannaeyjum. Haukar voru þremur mörkum yfir í hálfleik í dag 16-13 og náðu svo sex marka forystu í seinni hálfleik. Birna Berg Haraldsdóttir átti stórleik fyrir ÍBV og skoraði 16 mörk og Eyjakonur unnu upp forskot Hauka. Staðan var jöfn þegar nokkrar sekúndur voru eftir en sex sekúndum fyrir leikslok skoraði Kristrún Ósk Finnsdóttir sigurmark ÍBV sem vann 28-29 og jafnaði einvígið í 1-1. Næstu leikir í undanúrslitunum verða á miðvikudaginn.
Go to News Site