Collector
Aukin hætta í fullum fangelsum og gæsluvarðhaldsfangar látnir lausir | Collector
Aukin hætta í fullum fangelsum og gæsluvarðhaldsfangar látnir lausir
Fréttastofa RÚV

Aukin hætta í fullum fangelsum og gæsluvarðhaldsfangar látnir lausir

Síðustu misseri hafa öll fangelsi landsins, bæði lokuð öryggisfangelsi sem og opin, verið yfirfull. 718 manns bíða þess að taka út sína refsingu – og þar af er um helmingur sem bíður þess að komast í afplánun í fangelsi. Þeir sem eftir standa eru annaðhvort farnir úr landi eða hefur verið brottvísað – eða bíða þess að hefja samfélagsþjónustu. Fangelsum gert að nýta alla lausa klefa og ekki unnt að verða við gæsluvarðhaldsbeiðnum Fangelsum er gert að nýta alla lausa klefa og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum er sleppt úr haldi lögreglu eða þeir þurfa að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður. Fangaverðir segja fangelsin vanrækt. Harpa Lilja Vernharðsdóttir, fangavörður á Litla-Hrauni og ritari Fangavarðafélags Íslands, segir fangelsin flöskuháls réttarvörslukerfisins. „Aukið fjármagn annars staðar í réttarvörslukerfið verður til þess að þetta endar bara í okkar flöskuhálsi. Og þar byrja vandamálin,“ segir hún. Aukin hætta þegar ekki er hægt að færa menn til vegna plássleysis Almennir fangar hafa verið vistaðir dögum eða vikum saman í einangrunarklefum yfir nótt þar sem ekki er pláss fyrir þá á almennum deildum. Yfirfull fangelsi skapa erfiðar aðstæður. „Við viljum helst hafa undir 90% nýtingu á klefum þannig það sé hægt að færa menn ef eitthvað kemur upp á. Á Litla-Hrauni eru ellefu menn vistaðir á hverjum í gangi og það náttúrulega getur reynst mjög krefjandi, sérstaklega þegar þeir eru með svona fjölþætt og mismunandi vandamál.“ „Ef allt er fullt þá getum við ekki verið að færa á milli og þá skapast aukin hætta,“ segir Harpa. Sífellt erfiðara er að tryggja öryggi fanga og starfsfólks. „Auðvitað koma upp aðstæður sem eru okkur bara hættulegar og það færist í aukana sem sagt bara árásir á fangaverði og hótanir í okkar garð,“ segir Harpa. „Við þurfum að fjölga fangarýmum“ Fólk bíður árum saman eftir að komast að í fangelsi og afplána sinn dóm og dæmi eru um að dómar fyrnist á meðan beðið er. Fangaverðir segja nauðsynlegt að bregðast við en eru hóflega bjartsýnir. „Það verður að byggja nýtt fangelsi. Við þurfum að fjölga sem sagt fangarýmum og það þarf að vera hægt að takast á við aukinn fjölda í gæsluvarðhaldi, já, þannig að við erum svona hæfilega bjartsýn en náttúrulega bara vonum það besta,“ segir Harpa Lilja.

Go to News Site