Collector
Lánleysið algjört hjá Tottenham | Collector
Lánleysið algjört hjá Tottenham
Fréttastofa RÚV

Lánleysið algjört hjá Tottenham

Það gengur hvorki né rekur hjá liði Tottenham í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta þessa dagana. Liðið hefur ekki enn unnið deildarleik árið 2026 og fékk á sig jöfnunarmark undir blálok leiks gegn Brighton í dag. Allt leit út fyrir að Tottenham væri að sigla sínum fyrsta sigri á árinu heim en allt kom fyrir ekki. Liðið hefði með sigri farið upp úr fallsæti en nú eru einungis fimm leikir til stefnu fyrir liðið. Tottenham komst yfir með marki Pedro Porro á 39. mínútu. Mitom jafnaði metin fyrir Brighton á þriðju mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks. Tottenham tók svo aftur forskotið með glæsilegu marki Xavi Simons en þéttingsfast ristarskot hans fór efst í fjærstöngina og inn. Markið kom á 77. mínútu og virtist Tottenham ætla að landa punktunum þremur. Það var hins vegar Georginio Rutter sem jafnaði metin á fimmtu mínútu uppbótartímans. Tottenham er því í 18. sæti með 31 stig. Leeds vann 3-0 sigur gegn Wolves í dag og fjarlægðist því botnsvæðið. Þá eiga Forest og West Ham eftir að leika á morgun. Fallbaráttan 15. sæti. Leeds - 39 stig 16. sæti. Nottingham Forest - 33 stig 17. sæti. West Ham - 32 stig 18. sæti. Tottenham - 31 stig 19. sæti. Burnley - 20 stig 20. sæti. Wolves - 17 stig Önnur úrslit dagsins Brentford 0 - 0 Fulham Newcastle 1 - 2 Bournemouth Leikur stendur yfir: Manchester 0 - 0 Chelsea

Go to News Site