Fréttastofa RÚV
Vel gekk að ráða niðurlögum allmikils sinuelds undir Háfelli í dag. Um 19:30 var búið að slökkva eldinn og klukkutíma síðar hafði slökkvilið lokið við að vökva jarðveginn og tryggja vettvanginn. Svæði sinueldsins verður þó vaktað áfram í kvöld ef ske kynni að eldglæður leynist þar enn. Bjarki Már Gunnarsson, deildarstjóri útkalls- og æfingasviðs hjá Slökkviliði Mýrdalshrepps, telur sinueldinn hafa slagað upp í ferkílómeter. Eldur barst þó hvorki í hús, bíla né önnur tæki. „Þetta gekk vel framan af og svo snérist vindáttin að okkur. Það var sunnanátt og svo snýr áttin aðeins norðar og þá blés þetta aðeins upp á okkur,“ segir Bjarki í viðtali við fréttastofu. Hann segir það hafa skipt sköpum að hafa notið aðstoðar frá Björgunarsveitinni Víkverjar og Slökkviliði Skaftárhrepps. „Þetta hefði verið erfitt án þeirra.“ Tveir dælubílar voru sendir á vettvang auk eins tækjabíls og þriggja tankbíla. Rúmur helmingur af vatninu fór í að slökkva eldinn og restin var nýtt til að kæla jarðveginn.
Go to News Site