Fréttastofa RÚV
Félagar í þrettán björgunar- og hjálparsveitum á Suðurlandi fagna þessa dagana því sveitirnar voru að fá tuttugu milljóna króna gjöf frá fjórum stúkum í Oddfellowreglunni á Selfossi. Peningarnir verða nýttir til tækjakaupa. Gjafaafhending fór fram í Oddfellow-húsinu við Vallholt á Selfossi síðdegis í gær en hlutverk Oddfellow-reglunnar er meðal annars að stunda góðgerðarstarf og styrkja samfélagið og það sannaðist svo sannarlega með 20 milljóna króna gjöfinni frá stúkunum á Selfossi. 13 sveitir fengu styrki, mismikið en allur peningurinn fer til tækjakaupa. En hvað kemur til að Oddfellow ákvað að styrkja sveitirnar svona myndarlega? „Þetta er svæðið okkar og samræmist því sem við erum að gera og þetta er bara ánægjulegur dagur og í okkar hjarta að geta lagt gott af mörkum,” segir Sigurður Gunnarsson, yfirmeistari í stúku númer 17 Hásteini á Selfossi. Tuttugu milljónir, þetta er ótrúlega vel gert? „Já, við höfum verið öflug í að styðja við þjóðfélagið eins og mörg almannaheillafélög í landinu,” segir Guðrún Þórðardóttir, yfirmeistari í Rebekkustúkunni númer 9 Þóru Selfossi Félagar í björgunar- og hjálparsveitunum eru að sjálfsögðu í skýjunum með peningagjöfina. „Við erum ótrúlega þakklátir og fullir þakklætis. Þetta er gífurlega mikilvægt fyrir okkar sveitir, sérstaklega þar sem búnaður gerir ekkert annað en að hækka í verði og verkin okkar eru alltaf að verða meira og meira krefjandi, þannig að þetta er gífurlega mikilvægt,” segir Jakob Guðnason, varaformaður Hjálparsveitarinnar Tintron í Grímsnesi og Sveinn Ægir Birgisson, formaður Björgunarfélags Árborgar, tekur undir orð Jakobs Guðna. „Við erum hæstánægðir og ómetanlega þakklátir fyrir þennan styrk. Þessi styrkur gerir það að verkum að við getum endurnýjað nýjan björgunarbát fyrir leit og björgun í Ölfusá og vötnunum hérna í kringum Suðurland allt,” segir Sveinn Ægir og Jakob Guðni bætir við: „Peningarnir munu nýtast mjög vel í búnað og við erum nú þegar búnir að kaupa okkur fjarskiptabúnað Starlink, tvo til að hafa í bílunum okkar þannig að við munum alltaf vera í sambandi og margt annað sem við getum nýtt þessa fjármuni í, gífurlega mikilvægt.”
Go to News Site