Fréttastofa RÚV
Öryggislögregla Úkraínu rannsakar fjöldaskotárás sem framin var í Kyiv í dag sem hryðjuverk. Árásarmaðurinn var 58 ára Moskvubúi með glæpaferil að baki samkvæmt upplýsingum ríkissaksóknara. Lögreglumenn skutu hann til bana eftir að hann drap samtals sex almenna borgara í íbúðarhverfi og í stórmarkaði þar sem hann tók einnig nokkra í gíslingu. Upphaflega var sagt að fimm hefðu verið drepin. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í daglegu ávarpi sínu að fjórir hefðu týnt lífi á götum úti, einn í stórmarkaðnum og að kona hefði látist af áverkum á sjúkrahúsi. Fjórtán særðust í árásinni, þar á meðal tólf ára drengur.
Go to News Site