Collector
Heppinn kaupandi nældi sér í björgunarvesti af Titanic fyrir jafnvirði 111 milljóna króna | Collector
Heppinn kaupandi nældi sér í björgunarvesti af Titanic fyrir jafnvirði 111 milljóna króna
Fréttastofa RÚV

Heppinn kaupandi nældi sér í björgunarvesti af Titanic fyrir jafnvirði 111 milljóna króna

Björgunarvesti af farþegaskipinu Titanic seldist nýverið á uppboði í Wiltshire á Bretlandi fyrir 670 þúsund sterlingspund eða jafnvirði tæplega 111 milljóna íslenskra króna. Ekkert björgunarvesti af Titanic hefur áður verið selt á uppboði á þeim 114 árum sem liðin eru frá því það fórst í jómfrúrferð sinni. Þarna myndaðist því einstakt tækifæri fyrir kaupandann segir uppboðshaldarinn Andrew Aldridge, hjá Henry Aldridge & Son, í samtali við BBC . Hann kveðst himinlifandi yfir viðskiptunum, sem endurspegli þann mikla áhuga sem fólk hafi á örlögum Titanic, farþega þess og áhafnar. Bandaríska konan Laura Mabel Francatelli, sem ferðaðist á fyrsta farrými, setti á sig vestið áður en hún steig um borð í björgunarbát og varð þannig ein þeirra 700 sem lifðu sjóslysið af. Verðið mun hærra en búist var við Francatelli var einkaritari breska tískuhönnuðarins lafði Lucile Duff-Gordon, sem ferðaðist undir dulnefninu frú Morgan ásamt eiginmanni sínum Cosmo baróni. Þau hafa komið við sögu í nokkrum þeirra kvikmynda sem gerðar hafa verið um Titanic-slysið. Hjónin voru ranglega sökuð um að hafa borið fé á skipverjana í björgunarbátnum til að þeir tækju ekki fleiri um borð. Niðurstaða rannsóknardómara leiddi í ljós að svo var ekki og Sir Cosmo sagðist hafa látið mennina hafa peninga svo þeir gætu endurnýjað muni sem fóru niður með skipinu. Francatelli og aðrir eftirlifendur árituðu vestið, sem hefur tólf vasa og er búið axlarhlífum og hliðarólum. Vestið seldist á næstum tvöfalt hærra verði en uppboðshaldarar höfðu áætlað. Titanic var á sínum tíma stærsta og fullkomnasta skip sem smíðað hafði verið og var búið áður óþekktum þægindum og tækni. Meira en 1.500 manns fórust þegar Titanic sökk í jómfrúarferð sinni 15. apríl 1912, undan strönd Nýfundnalands. Skipið var álitið ósökkvanlegt og því voru ekki björgunarbátar í því fyrir nema lítinn hluta farþega, eða 1.178 manns. Flakið fannst á hafsbotni árið 1985.

Go to News Site