Collector
Finnskur kappaksturskappi lét lífið á Nürburgring-brautinni | Collector
Finnskur kappaksturskappi lét lífið á Nürburgring-brautinni
Fréttastofa RÚV

Finnskur kappaksturskappi lét lífið á Nürburgring-brautinni

Finnski kappakstursmaðurinn Juha Miettinen lét lífið í sjö bíla árekstri sem varð á þýsku Nürburgring-brautinni í gær. Mynd úr safni frá 24 klukkustunda kappakstrinum á Nürburgring.EPA / THOMAS FREY Björgunarlið brást skjótt við en tókst ekki að bjarga lífi Miettinens, sem var 66 ára og mjög reyndur kappakstursmaður. Hinir sex ökumennirnir slösuðust allir en enginn þeirra er í lífshættu. Slysið varð við upphitun fyrir sólarhringskappakstur á brautinni, sem álitin er einhver sú erfiðasta í heimi.

Go to News Site