Fréttastofa RÚV
Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Búlgaríu þar sem landsmenn ganga að kjörborðinu í áttunda sinn á fimm árum . Skoðanakannanir benda til þess að miðvinstribandalag flokka undir forystu Rumen Radev, fyrrverandi forseta landsins, fái um 35 prósent atkvæða. Hann stefnir að hreinum meirihluta og hefur heitið að taka af festu á landlægri spillingu í landinu, óstöðugleika og því fámennisstjórnarfari sem þar hefur ríkt. Radev sagði af sér forsetaembætti í janúar eftir að ríkisstjórn Rosens Zeljazkovs féll í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í desember þar sem afsagnar hennar var krafist. Fram að því hafði stjórnin staðið af sér fimm vantrauststillögur á þinginu. Radev hefur verið gagnrýninn á hernaðarstuðning Búlgaríu og Evrópusambandsins við Úkraínu og hefur talað fyrir að efla tengslin við Rússland. Radev hefur þó sagst ekki munu beita neitunarvaldi gegn ákvörðunum sambandsins. Lögregla hefur gert yfir milljón evra upptæka sem grunað er að hafi átt að nota við atkvæðakaup auk þess sem hundruð hafa verið handtekin, meðal annars sveitarstjórnarmenn og borgarstjórar. Helsti keppinauturinn Boyko Borissov, sem stjórnaði Búlgaríu óslitið í nærri áratug, segir að því fari víðsfjarri að nokkuð nýtt muni fylgja sigri Radevs. Hins vegar hefði GERB-flokkur hans uppfyllt fjölmörg loforð, þar á meðal inngöngu á evrusvæðið um áramótin . Greinendur búast við mun meiri kosningaþátttöku í ár en undanfarið vegna kappsemi Radevs og leiðtogar allra flokka brýna fyrir fólki að mæta á kjörstað.
Go to News Site