Fréttastofa RÚV
Júlía Kristín Jóhannesdóttir bætti í gærkvöld Íslandsmetið í 100 metra grindahlaupi þegar hún hljóp á 13,02 sekúndum á háskólamóti í Bandaríkjunum. Íslandsmetið átti Guðrún Arnardóttir og hafði það staðið í 30 ár eða frá árinu 1996 og var 13,18 sekúndur. Júlía Kristín bætti því Íslandsmetið um 16 hundruðustu úr sekúndu sem er mjög gott í spretthlaupsgrein sem þessari. Lágmarkið inn á Evrópumótið utanhúss í Birmingham á Englandi í ágúst er 12,88 sekúndur og því þokast Júlía Kristín einnig nær því. Aðeins stutt er síðan utanhúss tímabilið hófst hjá Júlíu, en hún var meðal keppenda á HM innanhúss í frjálsíþróttum í síðasta mánuði í 60 metra grindahlaupi, en hún margbætti Íslandsmetið í þeirri grein í vetur. Nánari umfjöllum má finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
Go to News Site