Collector
Oddaleikur af bestu sort og Valur í undanúrslit | Collector
Oddaleikur af bestu sort og Valur í undanúrslit
Fréttastofa RÚV

Oddaleikur af bestu sort og Valur í undanúrslit

Valur fer áfram í undanúrslit um Íslandsmeistaratitil í körfubolta karla eftir að hafa unnið Keflavík í oddaleik. Valur og Grindavík mætast í undanúrslitum. Áhorfendur fjölmenntu á Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en taugar Valsmanna voru mun sterkari á lokakaflanum. Að lokum unnu þeir fjórtán stiga sigur, 90-76. Keflvíkingar byrjuðu betur og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta leikhluta, 17-22. Keflvíkingar náðu mest átta stiga forskoti í öðrum leikhluta en þá vöknuðu heimamenn til lífs og leiddu sex stigum, 44-38, í hálfleik. Því varð ellefu stiga viðsnúningur í öðrum leikhluta. Allt annað Keflavíkur lið mætti til leiks í þriðja leikhluta en að honum loknum leiddi Valur með tveimur stigum, 65-63. Engin spurning undir lokin Valsmenn voru svo í gríðarmiklum ham í fjórða leikhluta. Sigurinn var í raun aldrei í hættu í lokaleikhlutanum og að lokum vannst fjórtán stiga sigur, 90-76. Booker í gír Frank Booker fór fyrir Valsmönnum í stigaskori og stemningu. Hann lauk leik með 29 stig en Keyshawn Woods bætti við 23 stigum. Remy Martin var stigahæstur Keflvíkinga með 23 stig.

Go to News Site