Collector
Hlutu dóm fyrir sviðsetta árás á lúxusbíla íklæddir bjarnarbúning | Collector
Hlutu dóm fyrir sviðsetta árás á lúxusbíla íklæddir bjarnarbúning
Fréttastofa RÚV

Hlutu dóm fyrir sviðsetta árás á lúxusbíla íklæddir bjarnarbúning

Þrír menn sem stóðu fyrir mislukkuðu tryggingarsvindli í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa hlotið 180 daga fangelsisdóm. Mennirnir sviðsettu bjarnarárás en „björninn“ réðst inn í Rolls Royce lúxusbíl af gerðinni Ghost og fór þar hamförum. Mennirnir studdu mál sitt með því að afhenda tryggingarfélaginu myndband af atvikinu. Myndbandið átti síðar eftir að fara eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Sjón er sögu ríkari: Líffræðingur hjá fisk- og dýralífsstofnun Kaliforníu skoðaði upptökuna og gat staðfest að ekki var um skógarbjörn að ræða. Tryggingaeftirlit ríkisins gerði síðar húsleit hjá mönnunum þremur og í leitirnar kom bjarnarbúningur sem notaður hafði verið við verknaðinn. Hægt er að sjá myndir af búningum sem notast var við í frétt BBC. Svikin námu rúmum 140.000 bandarískum dollurum í tryggingagreiðslum, en upphæðin samsvarar um 17 milljónum íslenskra króna.

Go to News Site