Fréttastofa RÚV
Útgönguspár benda til að PB, flokkabandalag Rumens Radev, fyrrverandi Búlgaríuforseta, fái 44 prósent atkvæða í þingkosningum sem haldnar voru í dag og þar með meirihluta á þingi, minnst 129 af 140 sætum. Radev hefur lýst yfir sigri í þessum áttundu kosningum í Búlgaríu síðustu fimm ár. Hver ríkisstjórnin á fætur annarri hefur farið með völd í þessu fátækasta ríki Evrópusambandsins frá því fjölmenn mótmæli gegn spillingu leiddu af sér fall stjórnar Boykos Borissov 2021. Evrópusinnaður GERB-flokkur hans og frjálslynda bandalagið PP-DB fá um tólf prósent atkvæða hvor samkvæmt útgönguspánum. Radev sagði af sér forsetaembætti í janúar og hét því að berjast af alefli gegn spillingu. Lokaniðurstaðna er að vænta ekki seinna en á morgun, mánudag. Rumen Radev sagði í ávarpi vonina hafa sigrað og hét því að halda áfram samstarfi við Evrópusambandið. Hann hefur lýst yfir efasemdum um Evrópusambandið og sagði sterka Búlgaríu og sterka Evrópu þurfa að hugsa gagnrýnið og raunsætt. Leiðtogar Evrópu hefðu fallið í þá gryfju að gerast siðapostular í breyttum heimi nýrra leikreglna. Radev hefur verið gagnrýninn á hernaðarstuðning Búlgaríu og Evrópusambandsins við Úkraínu og hefur talað fyrir að efla tengslin við Rússland. Boyko Borissov, sem stjórnaði Búlgaríu óslitið í nærri áratug, segir að því fari víðsfjarri að nokkuð nýtt muni fylgja sigri Radevs. Kosningaþátttaka fór yfir 50 af hundraði og hefur ekki verið meiri síðan í kosningunum 2021. Aðeins 39 prósent kjósenda skiluðu sér á kjörstað 2024 sem rakið hefur verið til mikils vantrausts almennings í garð stjórnmálamanna.
Go to News Site