Collector
Olíuverð hækkaði þegar markaðir voru opnaðir í Asíu | Collector
Olíuverð hækkaði þegar markaðir voru opnaðir í Asíu
Fréttastofa RÚV

Olíuverð hækkaði þegar markaðir voru opnaðir í Asíu

Olíutankar í japönsku höfuðborginni Tókíó.EPA / FRANCK ROBICHON Verð á West Texas Intermediate hráolíu hækkaði um 7,5 prósent þegar Asíumarkaðir voru opnaðir upp í rúmlega 90 bandaríkjadali tunnan. Hækkunina má rekja til ásakana Írana um að Bandaríkin hafi rofið skilmála vopnahlés með árás á íranskt flutningaskip á Ómanflóa. Verðið á Brent-Norðursjávarolíu hækkaði minna eða um 6,5 prósent upp í 96,27 dali tunnan.

Go to News Site