Fréttastofa RÚV
Risafarþegaskipið Legend of the Seas hóf reynslusiglingar í gær, sunnudag, sem geta tekið upp undir viku. Finnska Mayer-skipasmíðastöðin í borginni Turku á veg og vanda að smíði skipsins fyrir Royal Carribbean-skipafélagið. Það er í svokölluðum Icon-flokki. Legend of the Seas er 365 metra langt og tekur um 5.600 farþega. Það verður því næststærsta skemmtiferðaskip heims að sögn Önnu Hakala, samskiptastjóra skipasmíðastöðvarinnar, í samtali við YLE . Ætlunin er að Legend of the Seas hefji siglingar um Miðjarðarhafið í júlí og haldi loks til Karíbahafs þegar vetra tekur. Því er svo ætlað að snúa aftur til Evrópu sumarið 2027. Mayer hefur þegar afhent Royal Carribbean tvö farþegaskip í Icon-flokknum, Icon of the Seas var tilbúið 2023 og Star of the Seas í fyrrasumar. Tvö enn ónefnd Icon-skip, það fjórða og fimmta, eru í smíðum hjá Mayer sem nýlega samdi við Royal Carribbean um tvö til viðbótar fyrir árið 2036.
Go to News Site