Fréttastofa RÚV
Stjórnvöld í Michigan hafa hafnað beiðni dómsmálaráðuneytisins um að afhenda kjörseðla úr forsetakosningunum 2024. Gretchen Whitmer ríkisstjóri í Michigan.EPA / WILL OLIVER Ríkisstjórinn og demókratinn Gretchen Whitmer, innanríkisráðherrann Jocelyn Benson og Dana Nessel, dómsmálaráðherra Michigan, segja í sameiginlegri yfirlýsingu kröfuna hvort tveggja tilhæfulausa og fáránlega. Þær segja að bréf ráðuneytisins hafi borist þar sem auk kjörseðla var farið fram á að fá umslög afhent auk skriflegrar staðfestingar fyrir hverju greiddu atkvæði. „Við erum tilbúnar að verja rétt almennings til leynilegra kosninga ætli alríkisstjórnin að færa þetta hringleikahús til Michigan,“ segir í yfirlýsingunni.
Go to News Site