Collector
Pólskur pípari heldur réttindum þrátt fyrir málaferli stéttarfélags | Collector
Pólskur pípari heldur réttindum þrátt fyrir málaferli stéttarfélags
Fréttastofa RÚV

Pólskur pípari heldur réttindum þrátt fyrir málaferli stéttarfélags

Félag pípulagningameistara freistaði þess fyrir dómi að fá fellda úr gildi ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að gefa út meistarabréf til handa pólskum pípulagningarmanni. Maðurinn fékk leyfisbréf í pípulögnum eftir nám í Póllandi 2019 og lauk meistaraprófi 2023. Félag pípulagningameistara var ósátt við útgáfu meistarabréfsins. Félagið taldi námið í Póllandi ekki sambærilegt pípulagninganámi hérlendis og var ósátt við að ekki var leitað umsagnar þess. Stjórnvöld sögðu menntunina sambærilega við nám í Danmörku og Svíþjóð. Dómari ákvað að vísa málinu frá og tiltók nokkur atriði því til stuðnings. Það fyrsta er að Félag pípulagningameistara höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og pólska iðnaðarmanninum. Dómarinn sagði að stefna hefði átt sýslumannsembættinu sem gaf út leyfisbréfið og vísaði þar til nýlegrar dómaframkvæmdar. Dómarinn sagði einnig að þótt ekki hefði verið leitað álits Félags pípulagningameistara gæti félagið ekki krafist ógildingar af þeirri ástæðu. Félagið væri aðeins í hlutverki álitsgjafa við ákvörðun um útgáfu meistarabréfs en hefði hvorki úrskurðarvald né gæti það veitt bindandi álit um starf og starfsþjálfun.

Go to News Site