Collector
Helgi Bjartur hafi mátt þola ítrekaðar líflátshótanir | Collector
Helgi Bjartur hafi mátt þola ítrekaðar líflátshótanir
Fréttastofa RÚV

Helgi Bjartur hafi mátt þola ítrekaðar líflátshótanir

Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, hafa borist ítrekaðar líflátshótanir eftir umfjöllun um mál hans í fjölmiðlum. Lögmaður hans segir mikilvægt að umfjöllun byggi á staðreyndum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Oddgeiri Einarssyni, lögmanni Helga Bjarts. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðislega áreitni gegn barni og húsbrot. Helgi Bjartur braust inn á heimili fyrrverandi samstarfskonu sinnar í september í fyrra, fór inn í svefnherbergi 10 ára sonar hennar og áreitti hann kynferðislega. Rætt var við foreldra drengsins í Kastljósi í nóvember og aftur í síðustu viku eftir að dómur féll. Helgi Bjartur var ekki nafngreindur í fjölmiðlum fyrr en hann sendi frá sér yfirlýsingu, undir nafni, í janúar. Helgi Bjartur var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni en sýknaður af alvarlegri ákæruliðum því dómurinn taldi að fara þyrfti varlega í að draga ályktanir af framburði drengsins. Helgi Bjartur hafnaði ásökunum um að hafa brotið á drengnum en bar fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu. Í yfirlýsingu sem lögmaður Helga Bjarts sendi fjölmiðlum í dag er gagnrýnt að foreldrar drengsins hafi farið með rangfærslur í viðtali í síðustu viku og haldið því fram að skjólstæðingur hans hafi káfað á kynfærum barns. Í dómnum segir að með tilliti til sönnunargagna hafi ekki verið hægt að fullyrða að hann hafi gert það. Lögmaðurinn segir umfjöllun fjölmiðla hafa verið villandi og gagnrýnir að ekki hafi verið fjallað um þann möguleika að skjólstæðingur hans hafi drukkið sig í óminnisástand og endað á heimili samstarfskonu sem hann hafi verið í samskiptum við fyrr um nóttina, og tekið í buxnastreng manneskju sem lá í rúmi og horfið á brott um leið og hann hafi áttað sig á því að um barn væri að ræða. „Þrátt fyrir að öll atburðarrás kvöldsins, sem og frásögn brotaþola, geti stutt þá mögulegu atburðarrás hafa fjölmiðlar ekki greint frá þeim staðreyndum málsins,“ segir í yfirlýsingunni og að æskilegast væri að þeir sem vilji móta sér skoðun á málinu lesi dóminn í heild sinni.

Go to News Site