Collector
Þórdís Kolbrún hættir á þingi og verður sendiherra | Collector
Þórdís Kolbrún hættir á þingi og verður sendiherra
Fréttastofa RÚV

Þórdís Kolbrún hættir á þingi og verður sendiherra

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt af sér þingmennsku. Í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins segir að utanríkisráðherra hafi skipað hana sendiherra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Þórdís Kolbrún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og sat í ríkisstjórn árin 2017-2024. Hún gegndi embætti ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra, utanríkisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Þórdís Kolbrún var varaformaður Sjálfstæðisflokksins árin 2018-2025. Árni Helgason tekur sæti fyrir hana. Bryndís Haraldsdóttir, sem var þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar, er nú orðin fyrsti þingmaður í kjördæminu. Fyrsta sætið skipaði Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaður flokksins, sem hætti á þingi í janúar í fyrra.

Go to News Site