Collector
Mótshaldarar biðjast afsökunar: „Þetta voru hrein og klár mistök“ | Collector
Mótshaldarar biðjast afsökunar: „Þetta voru hrein og klár mistök“
Fréttastofa RÚV

Mótshaldarar biðjast afsökunar: „Þetta voru hrein og klár mistök“

Stjórn TM-móts Stjörnunnar biðst afsökunar á því að engin stelpa sé sjáanleg í myndböndum sem birt voru til þess að þakka þátttakendum mótsins fyrir komuna. Þessu er greint frá á Facebook-síðu mótsins. Í umræddum myndböndum var stelpum þökkuð þátttaka á mótinu með mynd af bangsa á meðan strákar í sama flokki fengu myndband af tilþrifum sínum. Myndböndin og færslurnar hafa verið fjarlægð af upplýsingasíðu mótsins. Á mótinu keppa börn í 6.-8. flokki í fótbolta á aldrinum 4-9 ára. Á síðunni kemur fram að mikil áhersla sé lögð á að gera öllum jafn hátt undir höfði á alla vegu. „Hvað myndir varðar þá sést vel ef t.d. rennt er yfir Facebook-síðu mótsins að það er raunin – eins og það á að vera!“ Í yfirlýsingunni segir að myndefni frá mótinu, sem lauk í gær, hafi ekki verið tilbúið og því sett inn eldra efni. „Það hefði auðvitað átt að setja inn myndbönd sem sýndu öll kyn – og þau eru til – en því miður var það ekki gert. Þetta voru hrein og klár mistök. Okkur þykir leiðinlegt að þetta hafi gerst og munum passa betur upp á þetta framvegis.“ Þau segja Stjörnuna vilja standa fyrir jafnrétti kynjanna í öllu íþróttastarfi félagsins og að félagið sé með metnaðarfulla jafnréttisáætlun og byggja leiðarljós félagsins á fagmennsku, samstöðu, gleði og árangri.

Go to News Site