Collector
Erfitt að bera kennsl á byrlunarofbeldi í nánum samböndum | Collector
Erfitt að bera kennsl á byrlunarofbeldi í nánum samböndum
Fréttastofa RÚV

Erfitt að bera kennsl á byrlunarofbeldi í nánum samböndum

Teymisstýra í Bjarkarhlíð segir erfitt fyrir þolendur að bera kennsl á byrlanir í nánum samböndum. Þolendur slíks ofbeldis hafi leitað til Bjarkarhlíðar, en hún telur fleiri hafa orðið fyrir því en leita sér aðstoðar. Umfjöllun CNN um alþjóðlega spjallhópa þar sem menn deila reynslu og ráðum um hvernig byrla megi eiginkonum eða kærustum og beita þær kynferðisofbeldi hafa vakið mikinn óhug. Ofbeldi sem þetta komst í hámæli í réttarhöldunum yfir eiginmanni Giséle Pelicot , sem var dæmdur fyrir að hafa byrlað henni, beitt hana kynferðisofbeldi og boðið tugum annarra manna að gera slíkt hið sama í áraraðir. Samkvæmt umfjöllun CNN er Pelicot-málið aðeins toppurinn á ísjakanum því umræðuhópar og vefsíður tileinkaðar ofbeldinu blómstra á alnetinu. Þúsundir manna ræða þar sín á milli um hvernig eigi að bera sig að við byrlunina ofbeldið. Þeir deila myndböndum hver með öðrum af því þegar þeir brjóta á meðvitundarlausum kærustum og eiginkonum sínum, stundum í beinu streymi þar sem aðrir borga fyrir að horfa. Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, segir erfitt fyrir þolendur að bera kennsl á svona ofbeldi. Þeir vakni í sínu venjulega umhverfi og byrlunum fylgi gjarnan minnisleysi. Gruni þolendur að ekki sé allt með felldu leiti þeir helst til makans eftir skýringum. „Sem að þá afsakar þetta á einhvern hátt, annað hvort að það hafi svo sannarlega verið eitthvað kynlíf í gangi og er bara hissa að hún hafi ekki munað eftir því, eitthvað slíkt, eða þá að þessu bara að það er algjörlega eytt út af borðinu, sem skilur þolandann eftir í mikilli óvissu þannig að hún fer jafnlega að efast um sína upplifun,“ segir Jenný. „Af því þetta er svo persónulegt og þú hefur svo lítið til að styðja þig við, þá því miður held ég að það séu færri sem leita sér aðstoðar heldur en fleiri.“ Jenný segir að helstu merki þessa ofbeldis sé sljóleiki og að vera óvenjuseinn til meðvitundar til samanburðar við hefðbundinn svefn, og líkamlegir áverkar. Hún hvetur þá sem telja sig hafa orðið fyrir slíku ofbeldi að leita til Stígamóta eða heilsugæslunnar, eða þeirra viðbragðsaðila sem næstir eru.

Go to News Site