Fréttastofa RÚV
Bandaríski söngvarinn D4vid var í dag ákærður fyrir að hafa banað fjórtán ára gamalli stúlku. Lík stúlkunnar fannst sundurlimað í bifreið söngvarans. Hinn tuttugu og eins árs gamli D4vid, sem heitir réttu nafni David Anthony Burke, var handtekinn í síðustu viku í tengslum við dauða fjórtán ára gamallar stúlku í Los Angeles í Kaliforníuríki. Unglingsstúlkan hét Celeste Rivas Hernandez og hafði hún átt í ástarsambandi við Burke. Hún sást síðast á lífi í lok apríl á síðasta ári og var þá á leið heim til söngvarans. Fimm mánuðum síðar, í september 2025, fannst Hernandez látin í Tesla-bifreið Burke. Lík hennar hafði verið sundurlimað. Burke hafði reynt að farga bílnum en vegna mikillar lyktar sem stafaði frá honum komst lögregla á snoðir um Hernandez. Saksóknarar í Kaliforníuríki hafa nú höfðað mál gegn söngvaranum vegna dauða Hernandez. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt stúlkuna, beitt hana kynferðislegu ofbeldi og fyrir að limlesta hana. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara í Kaliforníu myrti Burke stúlkuna til þess að hylma yfir kynferðisbrot af hans hálfu sem Hernandez hafði orðið vitni að. Hann gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi eða dauðarefsingu vegna glæpa sinna.
Go to News Site