Collector
250 milljóna króna listaverk í Vestmannaeyjum | Collector
250 milljóna króna listaverk í Vestmannaeyjum
Fréttastofa RÚV

250 milljóna króna listaverk í Vestmannaeyjum

Listaverk Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum, Sjónarhorn flakkarans, verður afhjúpað í næsta mánuði. Það samanstendur af útsýniskúlu og göngustígum upp Eldfellið og hringinn í kringum gíginn í fellinu. „Hugmyndin er að koma inn í þennan skála og horfa út um gat í miðju kúlunni og horfa á eldfjallið,“ segir Drífa Gunnarsdóttir, sviðstjóri og bæjarritari Vestmannaeyja. Gönguferðin á fellið sé hluti af upplifuninni. Heildarkostnaður við listaverkið og stígagerð er á þriðja hundrað milljónir króna, þar af greiðast ríflega áttatíu milljónir til listamannsins. „Upphaflegur kostnaður var áætlaður 200 milljónir en hann er kannski nær 250 milljónum í dag en framlag Vestmannaeyjabæjar er samt óbreytt, bara 50 milljónir. Þetta er auðvitað samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar og ríkisins,“ segir Drífa.

Go to News Site