Collector
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig | Collector
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig
Fréttastofa RÚV

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu, sem nær til stjórnmálaflokka á landsvísu. Greint var frá niðurstöðum hennar á vef Vísis í kvöld. Samfylkingin mælist með mest fylgi, 27,7%. Næststærstur mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 18,1%. Sjálfstæðisflokkurinn hefur greinilega verið að sækja í sig veðrið og mælist nú með meira fylgi en hann hefur gert í könnunum Maskínu síðan í september í fyrra, en fylgi hans hefur mælst á bilinu 13,5-16,2% síðan í októbermánuði. Til samanburðar hefur fylgi Samfylkingarinnar mælst á bilinu 25,5-29,4% á sama tímabili. Fylgi Miðflokksins tapar tveimur prósentustigum á milli mánaða og mælist 16,4%. Viðreisn tapar einnig fylgi og mælist með 12,8% í stað 14% í mars. Lítil hreyfing er á stuðningi við aðra flokka sem mælast allir með minna en tíu prósent fylgi. Framsóknarflokkurinn mælist með 7,7%, Flokkur fólksins með 5,8%, Sósíalistaflokkurinn með 3% og Píratar með 4,7%. Minnst er fylgi Vinstri grænna, 4,3%. Könnun Maskínu var framkvæmd á milli 25. og 31. mars og á milli 8. og 16. apríl. 1.786 svarendur tóku afstöðu. Þar af voru 91,4% sem sögðust fylgjandi ákveðnum flokki og 3,2% sögðust myndu skila auðu. 1,3% sögðust ekki munu kjósa og 4,1% vildu ekki gefa upp afstöðu sína.

Go to News Site