Vísir
Sigurður Sindri Magnússon athafnamaður segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot. Hann hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt var að hann hefði átt þátt í meintri hópnauðgun á Akureyri. Hann segir það alls ekki satt, heldur hafi hann aðeins leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað. Því hafi lögreglan tekið hann í skýrslutöku við upphaf rannsóknar, en nú þegar rannsókn lögreglu er lokið geti hann loksins opnað sig um málið.
Go to News Site