Collector
Aðalsamningamaður Írana segist ekki vilja semja um frið undir sífelldum hótunum Bandaríkjamanna | Collector
Aðalsamningamaður Írana segist ekki vilja semja um frið undir sífelldum hótunum Bandaríkjamanna
Fréttastofa RÚV

Aðalsamningamaður Írana segist ekki vilja semja um frið undir sífelldum hótunum Bandaríkjamanna

Tíu daga vopnahléi milli Írans og Bandaríkjanna lýkur á morgun og enn bendir fátt til framlengingar þess eða friðarsamnings. Íranir vilja ekki setjast að samningaborði með sífelldar hótanir Bandaríkjanna hangandi yfir sér, segir aðalsamningamaðurinn Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti þingsins, í færslu á samfélagsmiðlinum X. Leiðtogar beggja ríkja sögðust í gær búa sig undir styrjaldarátök að nýju þegar vopnahlénu lýkur. Ghalibaf sagði Íransher reiðubúinn með nýja hernaðaráætlun, án þess að tíunda það frekar. Bandaríski varaforsetinn JD Vance er sagður á leið til pakistönsku höfuðborgarinnar Islamabad til viðræðna við Írana sem vilja ekki staðfesta þátttöku meðan Bandaríkin halda höfnum landsins í herkví. Það segja Íranar brot á ákvæðum vopnahléssamkomulagsins. „Með hafnbanni og brotum gegn vopnahlénu ætlar Trump forseti ekki að semja um frið heldur knýja á um uppgjöf eða réttlæta ný átök,“ skrifaði Ghalibaf. Donald Trump hefur einnig sakað Írana um vopnahlésbrot með ógnunum í garð skipa á Hormússundi og hefur sagt ólíklegt að hann framlengi vopnahléð. Sprengjuregn bíði Írana ljúki vopnahlénu án samnings. Hafnbannið væri að granda Íran og því linnti ekki fyrr en samningur kæmist á, þar sem þrýst er á að Íranir gefi mikið eftir varðandi kjarnorkuáætlun sína.

Go to News Site