Collector
Umfangsmikilli lögregluaðgerð lokið á Akureyri | Collector
Umfangsmikilli lögregluaðgerð lokið á Akureyri
Fréttastofa RÚV

Umfangsmikilli lögregluaðgerð lokið á Akureyri

Umfangsmikilli lögregluaðgerð við Gránufélagsgötu á Akureyri lauk á öðrum tímanum í nótt og gistir einn fangaklefa að sögn Heimis Heiðarssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann staðfesti fyrr í kvöld að sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni. Lögregla var með mikinn viðbúnað þegar hæst lét. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst voru ekki færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll á vettvangi. Heimir segir lögreglu ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Sérsveitarmenn við æfingar.RÚV / Ragnar Visage Fréttin var uppfærð og henni breytt með upplýsingum um að aðgerðum væri lokið með handtöku.

Go to News Site