Collector
Chavez-DeRemer er hætt sem atvinnuvegaráðherra Trump-stjórnarinnar | Collector
Chavez-DeRemer er hætt sem atvinnuvegaráðherra Trump-stjórnarinnar
Fréttastofa RÚV

Chavez-DeRemer er hætt sem atvinnuvegaráðherra Trump-stjórnarinnar

Lori Chavez-DeRemer er hætt sem atvinnuvegaráðherra Bandaríkjastjórnar. Hún greindi sjálf frá brotthvarfinu á X sem þýði ekki að hún sé hætt fulltingi við bandarískt verkafólk heldur haldi hún áfram innan einkageirans. Í yfirlýsingu Hvíta hússins segir að Chavez-DeRemer hafi staðið sig frábærlega í ráðuneytinu. Aðstoðarráðherrann Keith Sonderling fyllir skarð Chavez-DeRemer tímabundið þar til Trump ákveður eftirmann hennar. Lori Chavez-DeRemer er þriðji kvenkyns ráðherrann til að yfirgefa ríkisstjórn Donalds Trump á skömmum tíma; heimavarnaráðherrann Kristi Noem og dómsmálaráðherrann Pam Bondi voru látnar taka pokann sinn með um mánaðar millibili. Eiginmaður og faðir með kynferðislegt áreiti Chavez-DeRemer hefur legið undir þungu ámæli vegna óviðurkvæmilegrar hegðunar eiginmanns hennar og föður í garð ungra kvenkyns starfsmanna ráðuneytisins. Samkvæmt umfjöllun The New York Times hafði þeim verið skipað að hlýða orðum karlmannanna. Ráðherra sjálf hefur ekki verið persónulega sökuð um að eiga hluta misgerðum tengdafeðganna en samkvæmt umfjöllun blaðsins bað hún starfsfólk um að færa sér vín í ferðum fyrir ráðuneytið. Minnst þrír starfsmenn lögðu fram formlega kvörtun þar sem þeir lýstu fjandsamlegu vinnuumhverfi innan ráðuneytisins. Rannsókn á athugasemdum við óstjórn Chavez-DeRemer, sem oft var sögð fjarhuga, leiddi af sér brottrekstur fjögurra náinna samstarfsmanna hennar. Þar á meðal voru starfsmannastjórinn og öryggisfulltrúi sem ráðherra var sökuð um að eiga í ástarsambandi við.

Go to News Site