Collector
Íbúðarhúsnæði óheilnæmt sökum myglu – fólk beðið að flytja út sem fyrst | Collector
Íbúðarhúsnæði óheilnæmt sökum myglu – fólk beðið að flytja út sem fyrst
Fréttastofa RÚV

Íbúðarhúsnæði óheilnæmt sökum myglu – fólk beðið að flytja út sem fyrst

Það bætir í vanda Kristnesspítala í Eyjafirði. Loka þurfti hluta húsnæðis spítalans vegna myglu í mars og nú hefur húsnæði starfsmanna verið metið óheilnæmt. Ríkið á um 20 íbúðir á svæðinu og búið er í 11 þeirra. Starfsmönnum hefur verið ráðlagt að flytja út sem fyrst. Eftir að mygla greindist í spítalanum sjálfum var ráðist í frekari greiningar á húsnæði í eigu ríkisins og umsjá Sjúkrahússins á Akureyri: „Við létum meta ástand eignanna, íbúðanna ellefu, fengum verkfræðistofu í það. Verkfræðistofan mat húsnæðið með tilliti til raka og mögulegrar sveppamyndunar. Það má því miður segja að niðurstöðurnar komu okkur dálítið á óvart. Þær voru verri en við héldum,“ sagði Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu á SAk. Hafa fundið fyrir einkennum Íbúar eru áhyggjufullir yfir stöðunni sem upp er komin og segja töluverða óvissu ríkja um framhaldið. Anna Lizzy Wichmann býr á svæðinu og vinnur sem hjúkrunarfræðingur á spítalanum. Hún og rúmlega tveggja ára sonur hennar hafa bæði fundið fyrir einkennum: „Í síðustu viku var okkur svo tilkynnt að við þyrftum að flytja út sem fyrst, af því að myglan er víða og rakinn líka. Ég hef ekki efni á að leigja á Akureyri,“ sagði Anna og bætti við: Ég hef aðallega áhyggjur af stráknum mínum, hann er svo lítill. Hann er farinn að sýna einkenni. Ég svo sem líka en þetta reddast einhvern veginn. Vilja samtal ríkis og sveitarfélags um framhaldið Sjúkrahúsið hefur séð um rekstur svæðisins, þar með talið fráveitu, snjómokstur og aðra innviði á Kristnesi. Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar segir sveitarfélagið tilbúið til að leita lausna með ríkinu. Starfsemin sé gríðarlega mikilvæg, ekki aðeins fyrir Eyjafjarðarsveit heldur samfélagið allt. „Við höfum lýst því yfir og sent erindi á eina þrjá ráðherra, þar sem við óskum eftir samtali um hvað er hægt að gera hér og hvernig er hægt að leysa þau vandamál sem upp eru komin. Við erum frekar lausnamiðað sveitarfélag myndi ég telja,“ sagði Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar og bætti við að fundur með fjármálaráðherra væri kominn á dagskrá en önnur ráðuneyti hefðu ekki svarað. Konráð Gylfason tók í svipaðan streng: „Best væri raunverulega að fá aktíft samtal milli heilbrigðisráðuneytis og sveitarfélagsins í Eyjafirði um lausn og framtíð þessa svæðis.“ Starfsmenn Kristnesspítala þurfa að flytja út úr starfsmannaíbúðum sökum myglu. Íbúar hafa orðið varir við einkenni og eru sorgmæddir yfir ástandinu.

Go to News Site