Fréttastofa RÚV
Keppni er hafin á Evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum í Georgíu. Fjórir Íslendingar munu keppa á mótinu og sú fyrsta stígur á stokk í dag. Þrjár konur keppa fyrir Íslands hönd á mótinu og einn karl en það eru þau Erla Ágústsdóttir, Guðný Björk Stefánsdóttir, Katla Björk Ketilsdóttir og Þórbergur Ernir Hlynsson. Ísland á ríkjandi Evrópumeistara í ólympískum lyftingum, Eygló Fanndal Sturludóttur, en hún getur ekki keppt á mótinu vegna meiðsla. Það er Katla Björk sem stígur fyrst íslensku keppendanna á stokk en hún keppir í -63 kílóa flokki í dag og er þar í B hópi. Á morgun lyftir Guðný Björk í -69 kílóa flokki en þar er hún í A-hópi. Lyft er í A, B og C hópum eftir árangri inn á mótið. Það verður því spennandi að sjá hvað Guðný gerir meðal þeirra bestu. Erla og Þórbergur Ernir keppa svo í +86 kílóa flokki og -110 kílóa flokki á laugardag. Erla verður í B hópi og Þórbergur í C hóp.
Go to News Site