Collector
Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum | Collector
Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum
Fréttastofa RÚV

Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum

Karla Björg Ketilsdóttir varð í þriðja sæti í B-hópi í 63 kílóa flokki á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu í morgun. Það má reikna með að hún verði þá í 15. sæti á heildina, þar sem hver hópur telur 12 keppendur og keppendur í A-hópnum eru allar með meiri þyngdir en Katla Björg fyrir mótið. Hún lyfti 95 kílóum í snörun og jafnhenti svo 106 kílóum. Samtals lyfti hún því 195 kílóum en átti 200 kíló samtals fyrir mót. Ísland á fjóra keppendur á mótinu í Georgíu og næst á svið er Guðný Björk Stefánsdóttir í 69 kílóa flokki á morgun. Guðný Björk keppir í A-hóp. Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari, er frá vegna meiðsla. Katla Björg KetilsdóttirLyftingasamband Íslands

Go to News Site